Ef þið viljið senda mér póst þá er netfangið: gnarlin at utopia punktur is. This webpage in english
Tónlist
Þessi nöfn eru valin af algjöru handahófi. Öll tónlist er enkóðuð í Ogg Vorbis.
Þetta er tónlist sem ég samdi og spilaði á píanó. Þegar ég er búinn að gera
góðar upptökur af fleiri af lögum mínum þá mun ég setja þau hingað.
Hér er ljósmynd sem Richard Stallman tók af mér (hægri), Hallgrími H. Gunnarsyni (miðju)
og Steini Eldjárni Sigurðarsyni (vinstri) á meðan við vorum allir talandi í símana okkar.
Myndin er tekin við rætur Snæfellsjökuls.
Greinar
Þetta er eitthvað af því sem ég hef skrifað í gegnum tíðina.
Hér eru þau forrit sem ég hef búið til. Þau voru búin til mér einum
til gleði og skemmtunar. Ef þú finnur not fyrir þau þá sendið mér póst
og látið mig vita. Nema annað sé tekið fram er allur hugbúnaður hér gefin út undir
GPL (GNU Public License) leyfinu.
Netconfig
Þetta er upprunalega gerðin af skriftunni sem varð síðar að netprofiler.
Skrifa netstillingar í skrár.
Þetta er skrifta til þess að breyta
netstillingum útfrá stillingaskrám sem notandinn getur
annaðhvort skrifað eða látið netprofiler búa til fyrir sig.
Aðalmunurinn er sá að hægt er að hafa mörg sett af stillingum og
kalla síðan á það tiltekna sett sem notandinn vill. Einnig er hægt
að láta forritið búa til stillingasett (profile).
Ég er einn af stofnendum félags sem heitir RGLUG en það stendur
fyrir Reykjavík GNU/Linux User Group. Þetta er notendahópur þeirra sem
nota frjálsan hugbúnað og GNU/Linux á Íslandi.